28.7.2017 | 21:25
RÚV á fallandi fæti? Er aðallega í vinsælum boltaíþróttum.
Eins og oft áður er RÚV ekki á vaktinni. Upplýsir ekki sína viðskiptamenn í tíma. Boltaíþróttir eru teknar við af fréttum og veðurspá. Greiðandinn veit lítið um hvert ríkisstofnunin stefnir. Alþingismenn sem settu leikreglurnar og eru sumir ráðherrar hafa engar áhyggjur af gjörningum sínum. Starfsfólkið er áhugalítið og tvö störf eru algeng fyrir sambærilegt við eitt á öðrum miðlum.
Æ fleiri taka útvarpsskattinn sem hvert annað hundsbit og hverfa frá áhorfi eða hlustun. Unga fólkið velur sér aðra miðla og þekkir varla miðilinn. Sjálfur hef ég hallað mér að enskum stöðvum. Valdar bíómyndir á Netflix koma í stað blands af gömlum íslenskum og enskum myndum RÚV. Á BBC eru tíðar veðurfréttir. Myndir af lægðagangi á Atlandshafinu skýra mikið veðurfarið hér.
Til samanburðar um RÚV og BBC má sjá hvernig fréttastofunnar nálgast efnið. RÚV með fréttafléttur þegar BBC reynir á markvissan hátt að vera hlutlaust í fréttaflutningi. Lítið er um pólitík nema á nóttunni og í viðtalsþáttum eins og Hardtalk. Athyglisvert hvernig BBC gerði létt grín af sleikjuskap Tony Blair við Gaddafi í tveggja tíma þætti um einræðisherrann. Sá þennan þátt á skoskri útgáfu BBC.
Í kjölfarið fylgdu ítarlegir þættir um borgarstríðið og mótmæli gegn kommúnistastjórn Nicolás Maduro í Vénúsela. Auk fræðandi efnis um breska þrælaflutninga. Ekkert skafið undan. BBC virðist hafa gegnheila stefnu í efnisvali þar sem almenn fræðsla er höfð í fyrirrúmi.
Greiðum þegar í sköttum okkar fyrir RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 28. júlí 2017
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson