9.3.2018 | 22:02
Íslenska í Hólavallakirkjugarði? Ný nálgun
Prófessor Sigríður er jákvæð og raunsæ. Krakkar vita meira en margur heldur. Tæknibyltingin í algleymi og framboð á netmiðlum óendanlegt. Að ná hæfni strax í ensku þarf ekki að vera slæmt. Að ná góðum framburði og skilningi í ensku kemur sér vel í háskóla þar sem mörg fög eru kennd á ensku. Betra að styðja og leiðbeina eins og háskólaprófessorinn segir.
VÍ vildi ekki frábæra nemendur með 10 í ensku og með háar einkunnir í stærðfræði hjá þeim sem voru með 7 í íslensku. Ágætur forstöðumaður mannanafnanefndar vill stýra nafnavali og hafa vit fyrir foreldrum. Skírnarnafngiftir eru næst getnaði og fólk vill ekki opinberar nefndir inn á gafl til sín. Sá valmöguleiki er alltaf til staðar að breyta eigin nafni, en ekki nægilega kynntur ungu fólki. Unga fólkið getur náð ágætum árangri í íslensku á seinni skólastigum. Lestur fornbóka átti sinn blómatíma en gæti allt eins komist í tízku að nýju.
Athyglisverð ráðstefna hjá ungu fólki.
Yngra fólkið kýs ensku umfram íslensku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2018 | 22:17
Lögregluborg? Sérsveitir og 6 fréttir um aðgerðir.
Ekki færri en 10 sérsveitamenn á Ægisíðu. Engar ástæður tilgreindar. Á öðrum stað eru getgátur um handtökur. Þrír handteknir á Grettisgötu af sérsveitamönnum. Ekkert lát á fréttum um lögregluaðgerðir og engar skýringar á fjöldahandtökum fyrr en undir kvöld.
Er Reykjavík að breytast í borg þar aðgerðir sérsveitamanna eru daglegt brauð? Miðað við fjölda íbúa ættu Akureyringar að hafa tvo sérsveitamenn í aðgerðum. Engar fréttir berast þó frá lögreglu á Akureyri. Reyndar fátt síðan RÚV lét loka veitingastað sem íslenskir Kínamenn ráku. Ekkert mansal átti sér stað og engin hætta á ferðum.
Er ekki ástæða til að staldra við og athuga hvernig lögreglumál eru þróast í smáborg eins og í Reykjavík? Ef sérsveitir eru kallaðar út mætti álykta að um vopnaburð og eiturlyfjasölu væri að ræða? Athygli vekur að í öðrum fréttum er lögreglan að vara við aukinni glæpatíðni. Knýja á um aukið fjármagn og mannafla.
Lögregluaðgerð á Ægisíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2018 | 21:02
Reiðilestur RÚV, ekki mark á takandi
Hver er tilgangur RÚV með þætti eins og Kveik, annað en að breiða út pólitískan rétttrúnað. Skoðanir á alþjóðamálum sem eiga aðeins upp á pallborðið hjá vinstri mönnum. Forstöðumaður Samgöngustofu segir að Atlanta flugfélagið hafi engin lög brotið.
Á Eyjunni mátti sjá frétt þar sem ríkisstarfsmenn RÚV tækla ævi Berlusconi. Endalok Silvio Berlusconi. Er þessi fordæming partur af upplýsingaþætti Ríkisútvarpsins? Nú horfi ég aðeins á veðurfréttir í sjónvarpi. Þær eru enn ekki litaðar en skotið inn á milli frétta og Kastljós.
Silvio heimsótti Þingvelli um ári. Hann hafði ekki miklar mætur á burstahúsunum eða kirkjunni sem honum þótti lítið til koma. Það var hans skoðun og ber að virða hana. Tímarnir breytast. Spyrja mætti í dag hvort Páfinn í Róm búi á Laugaveginum. Kannski er hann búsettur við Hörpu miðað við fjölda ferðamanna á þessum slóðum. Allt breytist nema Ríkisútvarpið.
Vopnaflutningar fari til utanríkisráðuneytis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 7.3.2018 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson