Fjármálakapall framtíðar. Óútfylltur víxill

Ný skuldasöfnun landsmanna? Sanna að of bratt hefur verið farið í að greiða niður erlendar skuldir. Bjarni Benediktsson hefur fengið flest prikin fyrir að greiða niður erlendar skuldir. Fyrir að afnema tolla og gjöld en fær bágt fyrir að auka ríkisútgjöld eins og skoðanakannanir sýna.

Nú ætlar ráðherra Framsóknar að leiða samtalið um ný vegagjöld. Láta útlendingana borga, eins og það hafi ekki verið gert með bifreiða og bensíngjöldum. Það afsakar ekki að fresta vegabótum við Hafnarfjörð og Hveragerði um 2-4 ár, þar sem slysahættan er mest. Óafsakanlegt er að ekki hefur verið gerður tvíbreiður vegur ofan við Hafnarfjörð. Í nokkur ár hefur aðeins vantað áherslumuninn, malbika á því næst tilbúnum vegstæði til Straumsvíkur. Kostnaður sem er lítill hluti af ágóða ríkisbankanna, gæti numið fimm miljörðum.

Vegagjöld kunna að verða nauðsynleg til að leysa vanda sem fyrri tíða stjórnmálamenn gátu fjármagnað úr ríkissjóði. Innheimtan verður færð yfir á þá sem nota vegina og þar verður til mikill millifærsluvinna sem leggst á bifreiðaeigendur sem verða gerðir ábyrgir. Aukinn kostnaður á atvinnurekstur og þá sem búa út á landi. Embættiselítan verður stikkfrí eins og áður og stjórnmálamenn munu reyna að hafa marga enda ónýta ef að líkum lætur. Vegamálaráðherra hefur gefið í skin að með vegagjöldum verði auðveldara að mæta breytingum sem fylgir aukningu rafbíla og með minni eldneytisgjöldum. 

 


mbl.is Lán Vegagerðarinnar greidd með vegtollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýnin Theresa May og Merkel ráða enn för.

Pattstaðan sem Brexit er komið í lýsir Bretlandi betur en flest annað. Stjórnmál í Bretlandi munu áfram markast af sjálfstæði eybúans. Endurteknum uppákomum í stjórnmálum. Bretar vilja njóta bestu kjara hjá EBS en ekki frjálsa för vinnuafls. 

Theresa May er táknmynd þrautseigju, þeirra sem gefast ekki upp. Í hennar stjórnartíð gengur efnahagurinn býsna vel og kjósendur almennt ánægðir. Vill öllum vel en fær ekki ráðið við minnihlutann í eigin flokki. Með áfram litlum meirihluta fyrir Brexit er ólíklegt að af samningum verði. Nýjar kosningar um útgönguna eru óumflýjanlegar eða breytt aðild að ESB. 

Hægri armur íhaldsflokksins verður ef til vill að sætta sig við að verkamannaflokkurinn nái völdum? May hefur ítrekað bent á það. Minnihluti íhaldsflokksins er andlitslaus, virðist treysta á að forsætisráðherrann hafi úthald og ráð? Þróunin í Bretlandi er spennandi, en ekki er víst að hún verði afgerandi fyrir Evrópu.


mbl.is „Ég hef hlustað á það sem þau sögðu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konurnar leiða umræðuna þegar friðurinn er úti. Íslensk leikgátt

Hvort sem er á heimili eða í samfélagi þá eru konur fyrstar til setja takmörk. Karlar yfirgefnir eða úthýst, allt gert til að fá fram yfirbót og breytingar til að bjarga hlutum fyrir horn.

Lilja Alfreðsdóttir ráðherra er ákveðin í að fá fram betri vinnufrið til góðra málefnavinnu, eins og hún orðar það. Tekur af skarið og sýnir forystuhæfileika. Hún virðist ætla að fylla tómarúmið í miðflokkapólitíkinni sem komið er upp.

Brestirnir í Framsóknarflokknum  við klofninginn hafa verið að koma fram á nokkrum misserum. Lilja hefur ekki viljað yfirgefa kjarnafólkið og fara yfir til Miðflokksins í staupapólitík? Barrausið eða vímugráturinn endurspeglar vonbrigðin og einangrunina.

Lilja hrósar þeim Sigmundi fyrir málefnalegan árangur í fyrri ríkisstjórn, en sér að nú er nóg komið af rugli. Merkilegt er hvernig fréttamönnum RÚV endist "klausturveislan". Tækla hvern einstakan bargrát og ná athyglinni dögum saman. Leiða umræðuna í stíl við leikþætti Rómverja?

 

   


mbl.is „Þeir eru ofbeldismenn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Des. 2018
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband