Dómarar í slag við valdið eða í baráttu um titla og embætti?

Talsvert er um samráð hjá dómurum innan rannsóknarvalds og meðal lögfræðinga í kerfinu. Skýrasta dæmið er sakamálatilbúnaðurinn sem varð að Geirfinnsmáli og menn viðurkenna 40 árum síðar að hafi verið embættismistök. Gæsluvarðhaldsúrskurði er hér beitt í margfalt meira mæli en í nágranalöndunum. Þar ráða dómarar ferð og geta vísað málum frá. Einstaklingar verða í auknum mæli að berjast við kerfið í dómsmálum þar sem valdið hefur nægan tíma og peninga.

Dómarar eru hluti af ríkiskerfinu. Það er þeirra að koma auga á vankanta og ræða þá opinberlega meðal almennings. Jón Steinar. Upplýsa hvar pottur er brotinn í lýðfrjálsu landi. Líta verður aftur í tímann á þróunina og hefðina. Hvernig við höfum einangrast og fjarlægst Evrópu í ýmsum málum sem varða lögfræðistéttina. Fyrir nokkrum árum var ekki algengt að lögmenn færu til útlanda eða störfuðu að hluta til erlendis.

Margir hafa bent á að betra hefði verið að hafa æsta dómstól í Danmörku eftir lýðveldisstofnunina. Á mörgum sviðum erum við að súpa seiðið af miður góðum vinnubrögðum sem hefði verið hægt að forðast. Skoða verður hvort hérlendis sé ofvöxtur í dómsmálum og annað er varðar menntun lögfræðinga.

 

 

 


mbl.is Ekki gaman að lenda í slag við valdið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"dómurum innan rannsóknarvalds" - Er þér ekki kunnugt um að rannsóknarréttarfar var afnumið á Íslandi fyrir mörgum áratugum síðan?

Guðmundur Ásgeirsson, 3.6.2017 kl. 13:28

2 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sæll Guðmundur

Rétt hjá þér Guðmundur. Það er hægt að miskilja þessa setningu. Þegar meðalhófs er ekki gætt t.d. í gæsluvarðhaldsúrskurðum og dómarar samþykkja í flestum tilfellum beiðni rannsóknaraðila þar um er ekki hægt að segja annað en samráð sé nærri. Dómarar í Guðmundar og Geirfinnsmálinu eiga mikla sök á því hvernig ungmenni voru þvinguð til játninga með ólögmætri einangrun og yfirheyrslum dag og nótt. Lögmenn hjá stofnunum þurfa og að gæta meðalhófs og setja ekki ábyrgðina á ólöglærða rannsóknarmenn. Eiga ekki að búa til mál innan kerfisins til að ná sér niðri á sakborningum. Samanber mál Seðlabanka gegn Samherja.

Leifar af gömlu réttarfarsreglum eru alltaf nærri. Sérstaklega ef ekki er haldið upp málefnalegri umræðu og gagnrýni innan kerfisins. Tíund er sér á blaði. Fréttir og greinar blaða vekja alltaf athygli, en umræðan í smáu samfélagi verður alltaf takmörkuð. Helst á blogginu með netmiðlunum.   

Sigurður Antonsson, 3.6.2017 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband