Skrautfjaðrir Steingríms

Stjórnmálamenn geta að sjálfsögðu keypt að "skemmtikrafta" eins og hver annar og látið þá tala eftir pöntun. Að halda slíka samkomu í Hörpunni með AGS mönnum undirstrikar alvöruna og djúpa undirölduna sem almenningur verður að baða sig í. Nóbelsverðlaunahafar í hagfræði er alls góðs verðugir. Þegar þeir lýsa sérstaklega því yfir við komuna til landsins að þeir þekki lítið til íslenskra aðstæðna ættu stjórnmálamenn að tala varlega.

Vissulega hefur krónan hjálpað til við að koma málum í betra horf eftir veisluna. Það hefur verið gert áður með gengisfellingum en almenningur tekur á sig byrðarnar. Skyldi Krugman þekkja til verðtryggingarinnar og þær álögur sem hafa verið lagðar á heimilin með 110% veðsetningu fasteigna. Hefur herra Steingrímur sagt Krugman frá öllum þeim atvinnulausu sem hafa farið erlendis, þeim sem hafa sest á skólabekk eða verið ráðnir í atvinnubótavinnu. Ætli atvinnuleysisprósentan væri ekki þá mæld í tugum prósenta. Fall gjaldmiðilsins frá lýðveldisstofnun er eitthvað það hæsta á byggðu bóli og lýsir stjórnsýslunni á Íslandi öðru fremur. Fyrir skömmu voru afgreidd lög um sveitastjórnarmál og engin takmörk sett um skuldsetningu þeirra. Halda á áfram í sömu óvissunni og láta almenning taka á sig krónufallið. 


mbl.is Munum áfram nota krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband