Er krónan óþörf? Viðhaldið af stjórnmálamönnum?

Stjórnmálamenn fyrri tíma prísuðu krónuna til að getað bjargað efnahaganum með gengislækkun. Ögmundur er einn þeirra sem lofa hana fyrir styrkingu. Krónan var sveigandleg og almenningur tók áhættuna af krónunni. Í dag gera öll stærstu útflutningsfyrirtækin upp í erlendri mynt. Laun og stærsti hluti kostnaðar er í gjaldeyri. Laun miðuð við aflaverðmæti. Óháð krónunni. 

Nú hafa mál snúist við. Styrking krónunnar veikir þau fyrirtæki sem eru háan hluta kostnað í launum, eins og ferðaþjónustan og fiskvinnslan. Tap Seðlabanka, um 55% af eigin fé árið 2016 segir sína sögu af hávaxtastefnu bankans. Allir nema keisarinn sjá hvert stefnir. Hvernig sem menn reyna að fegra krónuna gengur dæmið ekki upp. Hún er ofvaxin frjálsu hagkerfi og verður vandamál.

Gjaldmiðlum heimsins fer fækkandi og svo verður áfram. Seðlabankinn vill meiri völd og miðstýringu til að lifa af. Er líklegt að svo verði? Fagna verður því að fjármálaráðherra getur tjáð sig og sagt sína skoðun án þess að allt fari á endann. Hvort sem hann vill evru eða dollar. Aukið innstreymi erlendra fjárfesta getur á nokkrum mánuðum gjörbreytt stöðunni í litlu hagkerfi.

Aðgerða er þörf segir fjármálaráðherra og stendur í báða fætur. Styrkleiki ríkistjórnarinnar snýst um stöðuleika og frjálsræði. Almenningur er miklu betur upplýstur í dag um gjaldmiðlamál og varkár með eigið fé. Hans afkoma snýst um stöðugleika sem ekki er byggður á völdum fárra í miðstýringu.

 

 


mbl.is Óbreytt ástand „óforsvaranlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkn í stað aðstoðar. Að deyja með reisn?

"Dánaraðstoð" við dauðveika menn, oft þjáðra af langvarandi lyfjagjöf er ankannalegt orð. Lyfjaiðnaðurinn getur oft á tíðum frestað dauða, en er það alltaf réttlætanlegt? Líkn; ákall eða hjálp er gott og gilt orð sem má bæta við. Orðið líknaraðstoð, sýna miskunn er mun betra. Líknardauði ágætt? 

Orðið fæðingarof er dæmi um nýlega leit að orði til að draga úr ásökunum um inngrip. Fóstureyðing hefur hingað til verið nothæft. Orðið áréttar mikilvægi kennisetninga kristinna manna um helgun lífs. 

Læknavísindum og lyfjaiðnaði fleygir fram, en er það eitt og sér gild og góð ástæða til að lengja líf eða taka.


mbl.is Vilja umræðu um dánaraðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. apríl 2017

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband