3.2.2012 | 21:24
Dýr skóli með yfirbót
Axarsköft lífeyrissjóða er dýr skóli í litlu samfélagi sem ástundar varla gagnrýna hugsun. Sýnir í hnotskurn að hér er á mörkunum að reka þjóðfélag sem ekki styðst við góðar samræðuhefðir. Áratuga légleg fjármálastjórn útnesja þjóðfélags hefur að líkindum náð hámarki. Ákveðið hugrekki stjórna lífeyrissjóðanna er að birta kolsvarta skýrslu, en því má ekki gleyma að þeir eru að skoða sinn heimavöll. Ber vott um yfirbót manns sem hefur brotið af sér.
Hér er um þvingaðan sparnað að ræða sem lífeyrisfélagar hafa enga stjórn á og er dæmdur til að mistakast þrátt fyrir góð áform velferðafulltrúa. Skynsamlegast væri að þjóðnýta þennan sparnað að fullu og geyma sem gullforða í Seðlabanka. Forða sem ekki mætti nota nema á stríðstímum eða þegar mikill vá steðjar að. Glórulaust er að þvinga fólk til sparnaðar sem elur af sér forréttindastéttir og sjóðasukk.
Flestir landsmenn hafa nú uppgötvað gagnsleysi lífeyrissparnaðar en geta lítið um breytt. Það breytist varla mikið þangað til íbúarnir fá ákvörðunarvaldið í sínar hendur. Tæknilega eru netkosningar fjöldans framkvæmanlegar og geta tekið við af fulltrúalýðveldinu. Fært völdin og ákvarðanatöku til íbúanna.
|
LV fagnar útkomu skýrslunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



apalsson
urval3bjorn
esgesg
einarborgari
tilveran-i-esb
vulkan
don
kreppan
jennystefania
josira
rabelai
jonvalurjensson
photo
stinajohanns
kristjan9
olafurjonsson
pallblondal
robertb
sighar
shv
stjornuskodun
ipanama
svavaralfred
kermit





