18.2.2012 | 13:17
Ótrúleg frásögn en sönn.
Þrautseigja og þolinmæði þessa unga athafnafólks er eftirtektarverð. Táknræn fyrir fólk í atvinnurekstri og þá erfiðleika að vera hönnuðir í fámennu landi fjarri mörkuðum. Í stærri löndum eins og í Noregi og ESB er búið að ryðja brautina. Upplýsingaflæði gegnsætt og opinberir starfsmenn verða að standa sig. Hér eru höft og bankar á brauðfótum. Viðtalið er ítarlegt og lofsvert.
|
Skóævintýri í tollinum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.2.2012 | 09:17
Endurtekinn dómur
Í gær var fyrrverandi ráðuneytisstjóri neglur og krossfestur. Mikils metinn opinber starfsmaður til margra ára. Bólubréfasafnari án félags. Nú á að sýna að kerfið tekur við sér. Dómurinn er skýr. Opinber starfsmaður á ekki að stunda bóluviðskipti á minnsta hlutabréfamarkaði heims. Martha Stewart sjónvarpsstjarna og kokkur með meiru fékk 5 mánaða dóm en íslenska dómskerfið gerir betur. Eimreiðarmaður og brautryðjandi á hlutabréfamarkaði, 2 ár.
Mátulegt á hann hrópar lýðurinn. „Fagnaðarefnið þegar einstaklingur fellur en kerfið blífur." „Argasta bananalýðveldi bjargað." „Tímamót í réttarfarsögu eftir öll guðmundar og geirfinnsmálin.“ Gærdagurinn er ekki einungis sögulegur fyrir íslenska dómskerfið. Minnsta "peningastefnuvél" í heimi fær aflausn hjá Fitch-regluverkinu. Ruslflokknum aflétt stóð stórum stöfum. Gæðastimpillinn fundinn. Ísland í farabroddi undir vinstri stjórn.
"Á fullu stími út úr brimgarðinum." Út úr bóluhagkerfinu. Lifi makríllinn og AGS. Stórkostlegur sögulegur gærdagur, sem ber að fagna á ný í Hörpu. Sjáið bara: Hagar hækka og hækka. En aðeins fyrir útvalda í lokuðu bóluhagkerfi sakleysingja.
|
Forstjóra FME sagt upp |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



apalsson
urval3bjorn
esgesg
einarborgari
tilveran-i-esb
vulkan
don
kreppan
jennystefania
josira
rabelai
jonvalurjensson
photo
stinajohanns
kristjan9
olafurjonsson
pallblondal
robertb
sighar
shv
stjornuskodun
ipanama
svavaralfred
kermit





